KrakkagáturKrossgátur fyrir krakka

Fyrir kennara og foreldra

Hver rekur Krakkagátur?

Krakkagátur eru hluti af Gátum (gatur.is), sem Reon rekur. Hér eru aðeins krossgátur fyrir börn, án auglýsinga.

Hver býr til krossgáturnar?

Kennarar sem við höfum staðfest, og starfsfólk Gátna. Krossgáta kennara birtist hér ekki fyrr en starfsfólk hefur farið yfir hana og samþykkt. Ef kennari breytir krossgátu eftir það fer hún aftur í yfirlestur.

Kennarar búa krossgáturnar til á gatur.is og geta prentað þær þar, með lausnum á sérstakri síðu. Viltu verða kennari á Krakkagátum? Hafðu samband.

Ef eitthvað er að

Ef þér finnst krossgáta ekki eiga heima hér, láttu okkur vita og nefndu heiti hennar eða slóð. Notaðu Hafa samband á gatur.is.

Persónuvernd

Börn skrá sig hvorki inn né gefa upp nafn. Engar vafrakökur, engar auglýsingar og engin forrit frá öðrum. Það sem barn skrifar í krossgátu geymist aðeins í vafranum þess (localStorage) og fer ekki til okkar.

Þegar krossgáta er leyst í fyrsta sinn í vafra bætist einn við talningu sem kennarinn sem bjó hana til sér. Ekkert annað fylgir, hvorki um barnið né tækið. Vefþjónninn heldur hefðbundna aðgangsskrá, eins og aðrir vefþjónar.

Um kennara geymum við aðganginn á gatur.is (netfang og nafn), nafnið og skólann sem birtast undir krossgátum þeirra, og símanúmer ef það var gefið. Símanúmerið sér aðeins starfsfólk.